Ég fékk aldrei sendar upplýsingar um nr. að lyklaboxi og það var ekki hægt að hringja í neinn. Númer sem upp er gefið var bara utan þjónustusvæðis. Ef dömur 2 á kaffihúsinu hefðu verið farnar, þær voru að ganga frá þegar ég kom, þá veit ég ekki hvernig ég hefði átt að bjarga mér. Hefðu verið ofverkið að senda manni þetta nr. í pósti? Nú svo þegar búið var að prika upp lóðrétta stigann, inn í herbergi og draga andann, var farið að leita að wc, fann það, ca 0,6 fm. að gólffleti, undir súð. Þreytt lagðist ég í gott rúm, en nei, dúnkodd, sem eftir sek. var orðinn 1cm þykkur.
Vaknaði grjótstíf í öxlum og með hausverk. Dýrasta og versta gisting á mínu 8 nátta ferðalagi.